Um okkur

herbergi-103-nr-2.jpgHótel Breiðafjörður Stykkishólmi er lítið og notalegt fjölskylduhótel sem stendur við Aðalgötu 8, í hjarta bæjarins.

Í hótelinu eru 11 herbergi, 9 tveggja manna og 2 eins manns, öll með baði. Sum tveggja manna herbergin eru það rúmgóð að þau rúma vel aukarúm.

Á hótelinu er kaffitería fyrir morgunverð. Tvennar svalir eru á húsinu og eru aðrar þeirra yfirbyggðar þar sem gestir geta slakað á og notið útsýnis.

Nettengd tölva er á staðnum fyrir gesti.

Gestir hótelsins geta spilað frítt á golfvellinum hér í Stykkishólmi sem er skemmtilegur 9 holu völlur.

Okkar markmið er að veita góða þjónustu á sanngjörnu verði.

Hafið endilega samband og leitið frekari upplýsinga.

info [hjá] hotelbreidafjordur.is
Sími 433-2200
Aðalgata 8 340 Stykkishólmur